The AHA-Community

07.05.2008 15:06:56 / Auður

Vísindin eru yndisleg!

Ég elska vísindin....elsk elsk elsk! Núna er ég t.d. að gera tilraun (nó vörrís, ætla ekki að segja nánar um hvað) - en allavega þá þarf ég að mæla sýnin mín með ákveðnu millibili til að sjá bestu vaxtaraðstæður (tú möts?!!)

Ok...til að ná þessu sem bestu gerði ég mér lítið fyrir og mætti í skólann klukkan FIMM í nótt...jebbs, harkan 6 bara - því ég var sem sagt búin að sjá það út að með þessu næði ég vaxtarlínunni yfir daginn (í dag).

Nema hvað...núna er klukkan orðið 15:00 - sem þýðir að vinnudagurinn er að klárast og ennþá eru bakteríurnar mínar EKKERT.....EKKERT farnar að vaxa!!! Þetta væri ekkert mál ef ég gæti bara haldið áfram að sitja hérna og bíða...en það gengur ekkert, ég er að fara í hina vinnuna mína kl. 16:00 - móðurhlutverkið jú nó! Ohhh...ef þið vissuð bara hvað þetta er yndislega hressandi umhverfi, umhverfi þar sem ekkert er áreiðanlegt....nema jú hvað allir eru hressir og yndislegir!

Annað...í gær tókst mér hið ómögulega! ÉG át yfir mig af súkkulaði og mun sennilega ekkert langa í súkkulaði aftur....ever!! Gott gott gott!
Hrafndís - verst að þetta sest allt saman beint á puttana á mér....svo ekki sé nú talað um hausinn! Ef þú bara vissir hvað ég er lengi að skrifa þetta...reyna að hitta á rétta takka og svona! ;)

Auður - elskandi vísindin í dag! ;)
Ragga A skrifaði
Þú ert yndislegur nörri í þessum vaxtabakteríuleik ;) Sjáumst fljótlega - partý framundan, er það ekki?
Hafrún skrifaði
Auður......Þú ert met!!! ;)
Auður skrifaði
Ragga: partý í næstu viku.....jíííhúúúú!! Hlakka svo til!! :D
Hafrún: takk takk...þú ert mögnuð líka! ;)
Hrafndís skrifaði
Ég sé bara fyrir mér þar sem þið hjónin hjálpist að við að skrifa þessa færslu. Þú situr undir honum og hann skrifar.

Litlu nörrar....

Hvar er partý og týndist boðskortið mitt eða?

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.